Suðurnesjakylfingar sigursælir á Volcano í Eyjum
Tæplega tvöhundruð kylfingar mættu til leiks í hinu árlega og vinsæla Volcano móti í Vestmannaeyjum um síðustu helgi. Í hópnum voru stórkylfingar eins og Birgir Leifur Hafþórsson og Ásgeir Sigurvinsson en það voru hins vegar Suðurnesjakylfingar sem voru sigursælir í mótinu og röðuðu sér í efsta sætið í þremur flokkum af fjórum.
Vestmannaeyjavöllur skartaði sínu fegursta en keppt var í fjórum flokkum, 1. og 2. flokki karla og kvenna.
Þóranna Andrésdóttir úr Golfklúbbi Suðurnesja sigraði í 1. flokki kvenna. Hún fékk 77 punkta, þremur meira en Soffía D. Halldórsdóttir úr Keili. Þriðja varð Guðrún Ýr Birgisdóttir úr GR með 71 punkt.
Í 2. flokki vann Sigurrós Ú. Steinþórsdóttir úr Keili með 75 punkta. Önnur varð Sonja I. Einarsdóttir úr GM með 74 punkta og þriðja Keflvíkingurinn Ingunn E. Ingvadóttir úr GR með 72 punkta.
Í 1. flokki karla sigraði Grindvíkingurinn Bergvin Friðberg Ólafsson með 76 punkta. Annar varð heimamaðurinn Benóný Friðriksson með 74 punkta og þriðji Hávarður Gunnarsson úr Grindavík með 72 punkta.
Í 2. flokki skilaði Grindvíkurinn Haukur G. Einarsson 80 punktum, og vann. Annar varð Grettir I. Guðmundsson á 78 punktum og þriðji varð Lord Rovert Kelly með 76 punkta.
Á besta skori var Kristófer Orri Þórðarson úr GKG á þremur undir pari, 67-70 en annar varð Sigurbergur Sveinsson, hafnfirski Eyjamaðurinn á -2. Birgir Leifur Hafþórsson var með þriðja besta skor en hann lék báða hringina á pari, 70-70.
Fjarlægur draumur hins 39 ára Michael Hollick frá Suður Afríku rættist þegar hann sigraði á BMW mótinu í München í Þýskalandi á DP Evrópumótaröðinni með því að fá fugl á 17. holu og örn á 18. holu. Fimm-járnið skilaði höggum inn á flöt á báðum brautunum og púttin fóru ofan í. Kappinn er tíundi kylfingurinn sem sigrar í fyrsta sinn á DP mótaröðinni á þessari keppnistíð.

Þóranna Andrésdóttir lengst til vinstri vann í 1. flokki kvenna.

Haukur Guðberg annar frá hægri, var bestur í 2. flokki karla.

Besti kylfingur Íslandssögunnar, Birgir Leifur var mættur með eiginkonu til Eyja.

Minna þekktir Grindvíkingar fjölmenntu líka. Jón Gauti Dagbjartsson er á myndinni, virðist hafa þagað í smá stund af marka má myndina.


Knattspyrnuhetja Eyjamanna, Ásgeir Sigurvinsson er hér lengst t.v. ásamt fleiri skemmtilegum kylfingum.






