Þétt teymi með Gulla á US Open
Á undanförnum árum hefur mikið starf farið fram í golfhreyfingunni á Íslandi, allt í þeirri hugsun að ná lengra. Á Opna bandaríska mótinu núna er teymi með Gunnlaugi sem er honum til aðstoðar í mörgum málum og þáttum.
Sigmundur Einar Másson segir verkefni Gunnlaugs Árna Sveinssonar skemmtilegt og erfitt og líklega það stærsta sem íslenskur kylfingur hefur tekist á við. Simmi er einn nokkurra í þéttu teymi Gulla. „Það er óttúlegt að sjá hvernig hann passar inn í þetta allt, standa á æfingasvæðinu, slá og haga sér. Gulli er orðinn mjög þroskaður kylfingur miðað við aldur (20 ára),“ en Simmi segir teymið koma vel undirbúið til leiks. Meðal fleiri sem í því eru má nefna Gauta Grétarsson með líkamsræktarþáttinn og Andrés Davíðsson, íþróttasálfræðing. Þá er Bjarki Pétursson fyrrverandi atvinnumaður kylfusveinn Gulla á mótinu og þjálfari Gulla úr háskólaliðinu er einnig á staðnum, Íslendingnum til aðstoðar. Marga fleiri þætti hefur þurft að vinna í undirbúningnum sem hafa verið í umsjá Sveins, föður Gulla. Sem sagt; hörku teymi sem íslenski kylfingurinn er með sér til aðstoðar.
Simmi sem oft hefur verið sagður tölfræðigolfnörd landsins segir að umgjörð Gulla sé í takti við það sem gerist hjá atvinnumönnum. „Þó við séum að gera þetta í fyrsta skipti þá hefur þetta gengið vel og undirbúningurinn hefur verið mjög góður,“ segir Simmi sem hefur gengið með Gulla á æfingahringjum. Einn af mikilvægum þáttum í golfleiknum er skipulag en Shinnecock völlurinn krefst alls þess besta af kylfingum.

Karginn er víða þéttur utan brauta á Shinnecock Hills golfvellinum og því eru upphafshöggin mikilvæg en það er það líka erfitt verkefni að hitta flatirnar á þessum erfiða golfvelli, einum þeim erfiðasta sem US Open mótið er haldið á.
Að keppa á US Open er líklega erfiðasta verkefni atvinnukylfinga. Vellirnir, hvar sem keppt er, eru gerðir erfiðari en atvinnukylfingar eru yfirleitt að keppa á. Brautir eru þrengri, karginn er hærri og flatir eru hraðari. Forsvarsmenn USGA hafa sagt að þeir vilji hafa völlinn erfiðan en sanngjarnan. Árið 2018 þegar mótið var síðast haldið á Shinnecock Hills lentu kylfingar í miklum vandræðum þegar vindur fór hratt yfir, svo vandræði urðu á flötum. Frægt er þegar Phil Mickelson fékk víti fyrir að pútta þegar boltinn var á ferð.

Árangurinn á US Open mótunum sem haldin hafa verið á Shinnecock segja sína sögu. Árið 2018 vann Brooks Koepka á höggi yfir pari. Retief Goosen vann 2004 á fjórum undir pari og 1995 vann Corey Pavin á pari. Skorið er oftast við eða yfir par. Rauðar tölur eru því frekar sjaldgæfar á Shinnecock Hills. Parið er frábært skor á þessu erfiða móti og erfiða velli. Það verður áhugavert að sjá hvað gerist nú.


