Fréttir

Þórður Rafn ráðinn íþróttastjóri og nýtt þjálfarateymi hjá GR
Miðvikudagur 18. nóvember 2020 kl. 17:20

Þórður Rafn ráðinn íþróttastjóri og nýtt þjálfarateymi hjá GR

Þórður Rafn Gissurarson hefur verið ráðinn til starfa sem íþróttastjóri GR og tekur hann við starfinu af Snorra Pál Ólafssyni. Þórður Rafn mun formlega hefja störf þann 1. desember næstkomandi. Hans verksvið verður skipulag barna-, unglinga- og afreksstarfsins í heild auk þess að tryggja gott samskiptaflæði við foreldra og iðkendur í starfinu, segir á heimasíðu GR.

Þórður Rafn ætti að vera félagsmönnum Golfklúbbs Reykjavíkur vel kunnugur en hann hefur spilað undir merkjum klúbbsins í fjölda ára. Þórður var í atvinnumennsku frá árinu 2011 til ársins 2017. Á sínum tíma sem atvinnukylfingur spilaði hann mestmegnis á þýsku Pro Golf Tour mótaröðinni auk þess að hafa spilað á öðrum mótaröðum þ.á.m. Challenge Tour.

Golfklúbbur Reykjavíkur hefur einnig fengið til liðs við sig Hauk Má Ólafsson í þjálfarateymi klúbbsins. Haukur Már Ólafsson útskrifaðist sem PGA Golfkennari frá PGA á Íslandi árið 2015. Haukur hefur sinnt ýmsum störfum hjá GKG síðustu ár auk þess að sinna einkakennslu hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar sumarið 2020. Haukur mun vera í hlutverki stutta spils þjálfara hjá meistaraflokki ásamt almennri þjálrun barna og unglinga.

Ennfremur hefur samningur við Derrick Moore verið framlengdur og mun hann nú sinna stöðu yfirþjálfara og þá mun David G. Barnwell áfram sinna þjálfun barna og unglinga.