Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Þrír Íslendingar kepptu á Opna breska áhugamanna í Englandi
Miðvikudagur 17. júní 2026 kl. 06:02

Þrír Íslendingar kepptu á Opna breska áhugamanna í Englandi

Þrír íslenskir kylfingar tóku þátt í einu stærsta áhugamannamóti heims, Opna breska sem leikið var á tveimur völlum, Royal Liverpool og West Lancashire í byrjun vikunnar, þeir Aron Emil Gunnarsson frá Selfossi, Tómas Eiríksson Hjaltested úr GR og Veigar Heiðarsson frá GA.

Enginn þeirra náði í gegnum niðurskurðinn en 64 efstu komast áfram.

Veigar lék á 73-69 höggum og endaði í 55.-64. sæti og komst í bráðabana um sæti í holukeppninni sem tók við eftir höggleikinn en komst ekki áfram.

Aron Emil lék á 76 og 71 höggi og endaði jafn í 159. sæti og komst ekki áfram.

Tómas lenti í basli í fyrri hringnum og lék hann á 84 höggum þar sem hann lék þrjár holur á 7 höggum og eina á átta höggum en fékk samt fjóra fugla. Seinni hringurinn var betri, 73 höggum (+1) og andaði hann í 274. sæti og komst ekki áfram.

Skorið í höggleiknum.