Tveir Íslandsmeistarar með stórar „sprengjur“
Tveir fyrrverandi Íslandsmeistarar, þeir Axel Bóasson úr Keili, þrefaldur Íslandsmeistari og Suðurnesjakylfingurinn Logi Sigurðsson sem varð Íslandsmeistari 2023, fengu slæmar „sprengjur“ og fjarlægðust þannig toppbaráttuna á þessu Íslandsmóti sem fram fer á Korpúlfsstaðavelli í Reykjavík.
Axel fékk átta högg á 4. braut í fyrsta hring en hún er par 4 og ein af holum vallarins sem var lengd fyrir þetta mót. Axel kláraði hringinn samt ágætlega á tveimur yfir pari og enn í toppbaráttunni. Hann fékk síðan slæmt mistök á 12. braut á öðrum keppnisdegi þegar hann fékk 9 högg. Axel sló tveimur boltum út fyrir vallarmörk, fyrst með dræver og svo með 2-járni. Hann lék því holuna á fimm höggum yfir pari og samtals er hann því 9 yfir pari á tveimur brautum vallarins en endaði 36 holurnar á átta yfir.
Logi lenti í miklum vandræðum með dræverinn á fjórðu holu í fyrsta hring en þar setti hann þrjá bolta út fyrir vallarmörk í upphafshöggum og lék brautina á 11 höggum, sjö yfir pari! Hann sló síðan líka út fyrir vallarmörk á næstu holu, 5. braut og fékk þar tvöfaldan skolla og var þá kominn níu högg yfir par. Hann lauk fyrsta hring á 81 höggi (+10) en lék mun betur í öðrum hring, tveimur undir pari og tryggði sig í gegnum niðurskurð.


