Tveir ungir í toppbaráttunni - 15 ára á besta skori dagsins - 17 ára í 2. sæti
Tveir ungir kylfingar sem hafa ekki verið í toppbaráttunni á Íslandsmóti í golfi verða í sviðsljósinu á þriðja keppnisdegi. Halldór Jóhannsson, 15 ára kylfingur úr Golfklúbbnum Keili, lék á besta skori annars keppnisdags. Annar ungur kylfingur, hinn 17 ára Kristján Karl Guðjónsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar deilir 2. sæti mótsins en hann hefur leikið mjög flott golf og er á -3.
Halldór lék annan hringinn á fjórum undir pari, 67 höggum, fékk fimm fugla og einn skolla. Hanner í 5. sæti mótsins á höggi undir pari en hann lék fyrsta hringinn á þremur yfir pari.
Kristján Karl hefur leikið mjög stöðug og flott golf og aðeins fengið þrjá skolla á 36 holum en sex fugla.
Það verður áhugavert að fylgjast með þessum ungu nýliðum í toppbaráttu Íslandsmóts, í tveimur síðustu ráshópunum á þriðja keppnisdegi þar sem athyglin verður meiri og sjónvarp í beinni útsendingu.


