Fréttir

Úrtökumótin: Dagbjartur vann sig upp listann á þriðja keppnisdegi
Dagbjartur Sigurbrandsson.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
fimmtudaginn 19. september 2019 kl. 16:22

Úrtökumótin: Dagbjartur vann sig upp listann á þriðja keppnisdegi

Dagbjartur Sigurbrandsson GR lék í dag þriðja hringinn á 1. stigs úrtökumóti fyrir Evrópumótaröð karla sem haldið er á Stoke by Nayland í Englandi.

Dagbjartur lék hringinn á þremur höggum undir pari og er jafn í 23. sæti í mótinu þegar nokkrir kylfingar eiga eftir að ljúka leik á þriðja keppnisdegi.

Á hring dagsins fékk Dagbjartur alls fjóra fugla og einn skolla en hann hefur farið upp um 14 sæti í mótinu með hring dagsins.


Skorkort Dagbjarts.

Spilamennska Dagbjarts síðustu tvo daga hefur verið góð en hann hefur leikið þá hringi á 5 höggum undir pari eftir að hafa spilað fyrsta hringinn á 75 höggum (+4).

Líkt og Kylfingur greindi frá fyrir mótið komast um 20% kylfinga áfram á næsta stig af hverjum keppnisstað á 1. stigs úrtökumótunum. Á Stoke by Nayland svæðinu hófu 93 kylfingar leik og komast því um 19 kylfingar áfram. Dagbjartur þarf því að halda vel á spöðunum á morgun þegar lokahringur mótsins fer fram til þess að komast á 2. stigið.

Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.