Fréttir

Úrtökumótin: Hátt skor hjá íslensku kylfingunum á Desert Springs
Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
föstudaginn 8. nóvember 2019 kl. 17:02

Úrtökumótin: Hátt skor hjá íslensku kylfingunum á Desert Springs

Andri Þór Björnsson GR, Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR og Rúnar Arnórsson GK léku í dag annan hringinn á 2. stigs úrtökumóti fyrir Evrópumótaröð karla sem fer fram á Desert Springs vellinum á Spáni.

Íslensku strákarnir fóru allir vel af stað í gær en skor keppenda var almennt töluvert hærra í dag þar sem mikill vindur á svæðinu gerði kylfingum erfitt fyrir.

Andri er efstur af íslensku strákunum eftir tvo hringi en hann er samtals á höggi undir pari. Andri lék á fimm höggum yfir pari í dag en er þrátt fyrir það enn í fínni stöðu til þess að komast áfram á lokastigið þar sem hann er jafn í 17. sæti.


Guðmundur Ágúst lék fyrsta hringinn á 4 höggum undir pari en lék, líkt og Andri, á fimm höggum yfir pari í dag. Hann er jafn í 23. sæti eftir tvo hringi og þarf að fara upp um þrjú sæti á næstu tveimur dögum til þess að halda áfram.


Rúnar er í verri málum en GR-ingarnir tveir eftir að hafa leikið á 80 höggum í dag. Rúnar er jafn í 59. sæti á sex höggum yfir pari í heildina, sjö höggum á eftir niðurskurðarlínunni.


Eftir fjóra hringi komast um 20 kylfingar áfram á lokastig úrtökumótanna.

Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.

Sjá einnig:

Úrtökumótin: Bjarki lék aftur á 74 höggum