Veigar varð meistari eftir magnað einvígi við Loga
Það var boðið upp á mikla spennu og frábært golf þegar þeir Veigar Heiðarsson, GA, og Logi Sigurðsson, GS, börðust um Íslandsmeistaratitilinn í piltaflokki 19-21 árs í Vestmannaeyjum um helgina. Úrslitin réðust á síðustu holu.
Veigar fékk fugl á síðustu fimm brautunum og tryggði sér eins högg sigur. Nýbakaður Íslandsmeistari frá síðustu helgi, Logi, var nálægt því að setja sex metra pútt í holu á lokaflötinni fyrir erni til að jafna við Veigar, en boltinn fór í holuna og uppúr.
Þeir félagar háðu magnað einvígi. Veigar var með tveggja högga forskot eftir 36 holur en leiknar voru 54 holur. Logi var kominn fimm undir par eftir tíu holur og var þá kominn í þriggja högga forystu. Það dugði honum ekki að leika síðustu átta holurnar á -2. Veigar kom með ótrúlegan lokakafla með fugli á síðustu fimm holunum og tryggði sér sigur. Hann setti niður góð pútt á 14. 15. og 17. braut en fékk létta fugla á 16. og 18. holu. Þeir voru í sérflokki í mótinu og enduðu á 11 og 10 undir pari.
Sara Kristinsdóttir, GM, sigraði í flokki 17-21 árs stúlkna á fimm höggum yfir pari og vann með átta högga mun. Berglind Erla Baldursdóttir GM varð önnur og þær Helga S. Pálsdóttir, GR og Elsa Maren Steinarsdóttir, GL, jafnar í 3.-4. sæti.
Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM, varð Íslandsmeistari í stúlknaflokki 15-16 ára og sigraði með fjórtán högga mun. Auður B. Snorradóttir, GM, varð önnur og Fjóla Margrét Viðarsdóttir úr GS þriðja.
Guðjón Frans Halldórsson, GKG, sigraði örugglega í piltaflokki 15-16 ára á tveimur höggum undir pari og vann með tíu högga mun. Annar varð Guðlaugur Þór Þórðarson, GL og þriðji Gunnar Þór Heimisson, GKG.