Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Fréttir

Vilyrði fyrir íþróttamiðstöð á Hlíðavelli
Mánudagur 10. ágúst 2015 kl. 12:16

Vilyrði fyrir íþróttamiðstöð á Hlíðavelli

Golfklúbbur Mosfellsbæjar greinir frá á vefsíðu sinni að í sumar verði unnið að því að hefja byggingu íþróttamiðstöðvar við Hlíðavöll sem mun koma miðsvæðis við völlinn. Fyrir liggja grunntillögur að húsinu og byggingarreitnum sem unnar hafa verið á vegum byggingarnefndar klúbbsins í vor og sumar. Þessar grunntillögur, ásamt verkáætlunum og kostnaðarmati, auk rekstraráætlunar GM til 10 ára, hafa verið kynntar Landsbankanum í tvígang í sumar.

Gert ráð fyrir því að heildarkostnaður við þá áfanga sem samið er um núna verði allt að 240 milljónir.
Bygging íþróttamiðstöðvar GM verður áfangaskipt og mun taka nokkur ár að klára að fullu. Sá samningur sem nú liggur fyrir mun fjármagna byggingu tveggja hæða húss þar sem á efri hæð verður félagsaðstaða, skrifstofur, rástímaskráning og veitingasala. Neðri hæð verður nýtt sem æfingaaðstaða og verður gert ráð fyrir aðstöðu fyrir púttæfingar, golfhermum og annarri aðstöðu sem mun nýtast félagsmönnum allt árið um kring.

Örninn 2025
Örninn 2025

Gert er ráð fyrir því að flutt verði inn í nýja íþróttamiðstöð fyrir golfsumarið 2017.
Stjórn klúbbsins mun boða til félagsfundar innan skamms þar sem áætlanir um framkvæmdir verða kynntar í meiri smáatriðum. Teikningar verða kynntar félagsmönnum, verkefnið lagt fram til samþykktar og umræður teknar. Stefnt er að því að fundurinn verði haldinn í kringum mánaðarmótin ágúst / september eða um leið og nauðsynleg kynningargögn fyrir hann hafa verið útbúin.

Landsbankinn hefur verið öflugur stuðningsaðili við golf í Mosfellsbæ og endurnýjaði í sumar styrktarsamning við GM sem einn af aðalstyrktaraðilum klúbbsins. Stjórn Golfklúbbs Mosfellsbæjar, fyrir hönd félagsmanna, er afar þakklát fyrir þann stuðning og fyrirgreiðslu sem Landsbankinn og Mosfellsbær hafa veitt klúbbnum til að byggja klúbbnum nauðsynlega aðstöðu við einn fallegasta golfvöll landsins.