Bjarni Þór og Karlotta klúbbmeistarar NK 2022
Karlotta vann sinn 18. klúbbmeistaratitil
Bjarni Þór Lúðvíksson og Karlotta Einarsdóttir eru klúbbmeistarar NK 2022.
Bjarni Þór lék hringina fjóra á 278 höggum (70-66-69-73) eða samtals á 2 höggum undir pari Nesvallar, einu höggi betur en Guðmundur Örn Árnason og Nökkvi Gunnarsson.
Karlotta lék hringina fjóra á 309 höggum (77-76-77-79) eða samtals á 29 höggum yfir pari vallarins, níu höggum betur en Helga Kristín Gunnlaugsdóttir. Í þriðja sæti varð Elsa Nielsen.
Bjarni Þór varð með sigrinum klúbbmeistari annað árið í röð. Karlotta vann sinn 18. klúbbmeistaratitil - geri aðrir betur!