Fréttir

Fimm atvinnukylfingar fá greitt úr styrktarsjóði Forskots
Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
Laugardagur 6. febrúar 2021 kl. 22:41

Fimm atvinnukylfingar fá greitt úr styrktarsjóði Forskots

Golfsamband Íslands tilkynnti í gær hvaða kylfingar fengu úthlutað úr Forskoti afrekssjóði kylfinga fyrir árið 2021. Alls fá 5 atvinnukylfingar styrk úr sjóðnum á árinu 2021 og er þetta 10. árið í röð þar sem íslenskir afrekskylfingar fá úthlutað úr sjóðnum. Forskot afrekssjóður var stofnaður um mitt ár 2012 og þann 14. júní það sama ár var í fyrsta sinn úthlutað úr sjóðnum. Að sjóðnum standa fyrirtækin Eimskip, Valitor, Íslandsbanki, Icelandair Group, Vörður tryggingar, Bláa Lónið auk Golfsambands Íslands.

Þessir fimm kylfingar hlutu styrki fyrir árið 2021:

Bjarki Pétursson, GKB
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK
Haraldur Franklín Magnús, GR
Valdís Þóra Jónsdóttir, GL

Eftirfarandi kemur fram á heimasíðu golfsambandsins:

„Frá því að Forskot afrekssjóður var stofnaður árið 2012 hefur slagkrafturinn hjá íslenskum atvinnukylfingum verið meiri en áður og samtakamáttur þeirra aðila sem koma að sjóðnum fleytt okkar bestu kylfingum inn á nýjar brautir. Ríkar kröfur eru gerðar til styrkþega um ráðstöfun styrkja og ber þeim að leggja fram æfinga- og keppnisáætlanir auk fjárhagsáætlunar fyrir öll verkefni auk þess sem gerðir eru sérstakir samningar við hvern afrekskylfing um að þeir virði reglur Íþrótta- og Ólympíuhreyfingarinnar og sjóðsins. Þeir kylfingar sem fá úthlutað eiga það sameiginlegt að vera sterkar fyrirmyndir og afreksfólk í fremstu röð. Það að eiga afreksmenn í íþróttum er mikilvægur þáttur í því að hvetja börn og unglinga til að sinna íþróttum og þannig stuðla að forvörnum og lýðheilsu. Fyrirtækin sem koma að sjóðnum eru virkilega ánægð hvernig Íslenskt afreksgolf hefur þróast í stöðugri framför frá stofnun sjóðsins. Sjóðurinn hefur frá upphafi haft það að markmiði að styðja við þá atvinnukylfinga sem stefna á að komast í fremstu röð í íþróttinni og eru að stíga sín fyrstu skref. Einn fulltrúi frá hverju fyrirtæki sem aðild eiga að Forskoti situr í stjórn sjóðsins en auk þess hefur stjórn sjóðsins sér til ráðgjafar fagteymi sem leggur fram tillögur  um úthlutanir úr sjóðnum á ári hverju.

Stjórn Forskots óskar öllum afrekskylfingum góðs gengis á árinu 2021.“


Guðrún Brá og Bjarki Pétursson.


Haraldur Franklín Magnús.


Valdís Þóra Jónsdóttir.