Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Fimm kylfingar fengu stig í kjöri Íþróttamanns ársins 2018
Haraldur Franklín Magnús og Valdís Þóra Jónsdóttir.
Sunnudagur 30. desember 2018 kl. 11:30

Fimm kylfingar fengu stig í kjöri Íþróttamanns ársins 2018

Samtök íþróttafréttamanna kusu Íþróttamann ársins í 63. skipti í ár og var valið kunngjört við hátíðlega athöfn í Hörpu. Knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir hlaut nafnbótina þetta árið.

Sara Björk er fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta og lykilmaður í einu besta félagsliði Evrópu, Wolfsburg. Hún vann kosninguna með 464 stigum af 600 mögulegum.

Nokkuð naumt var á mununum á milli þriggja efstu í kjörinu, 48 stigum munaði á Söru og Júlían J. K. Jóhannssyni sem varð í öðru sæti. Gylfi Þór Sigurðsson varð þriðji með 344 stig.

Alls fengu fimm kylfingar stig í kosningu ársins en enginn jafn mörg og Haraldur Franklín Magnús sem endaði í 7. sæti í kjörinu. Valdís Þóra Jónsdóttir hlaut næst mest stig af kylfingunum og varð í 11. sæti í kjörinu.

Örninn 2025
Örninn 2025

Úrslit kosningarinnar í heild sinni eru eftirfarandi:

Íþróttamaður ársins 2018:

1 Sara Björk Gunnarsdóttir, fótbolti, 464
2 Júlían J. K. Jóhannsson, kraftlyftingar, 416
3 Gylfi Þór Sigurðsson, fótbolti, 344
4 Guðjón Valur Sigurðsson, handbolti, 164
5 Alfreð Finnbogason, fótbolti, 136
6 Jóhann Berg Guðmundsson, fótbolti, 124
7-8 Haraldur Franklín Magnús, golf, 95
7-8 Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, frjálsíþróttir, 95
9 Valgarð Reinhardsson, fimleikar, 58
10 Martin Hermannsson, körfubolti, 56
11 Valdís Þóra Jónsdóttir, golf, 49
12 Aron Einar Gunnarsson, fótbolti, 39
13 Aron Pálmarsson, handbolti, 25
14 Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir, íþr. fatlaðra, 18
15 Arnór Sigurðsson, fótbolti, 17
16 Andrea Sif Pétursdóttir, fimleikar, 16
17 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, golf, 15
18 Róbert Ísak Jónsson, íþr. fatlaðra, 12
19 Axel Bóasson, golf, 11
20 Anton Sveinn McKee, sund, 9
21-22 Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsíþróttir, 4
21-22 Arnar Davíð Jónsson, keila, 4
23 Helena Sverrisdóttir, körfubolti, 4
24 Hannes Þór Halldórsson, fótbolti, 3
25-29 Sif Atladóttir, fótbolti, 2
25-29 Aníta Hinriksdóttir, frjálsíþróttir, 2
25-29 Guðni Valur Guðnason, frjálsíþróttir, 2
25-29 Fanney Hauksdóttir, kraftlyftingar, 2
25-29 Glódís Perla Viggósdóttir, fótbolti, 2
30-31 Þuríður Erla Helgadóttir, lyftingar, 1
30-31 Birgir Leifur Hafþórsson, golf, 1

Lið ársins:

1 Landslið Íslands, golf, 90
2 ÍBV karla, handbolti, 83
3 Kvennalandslið Íslands, hópfimleikar, 40
4 Breiðablik kvenna, fótbolti, 35
5 KR karla, körfubolti, 12
6 Valur karla, fótbolti, 6
7 Karlalandslið Íslands, fótbolti, 4

Þjálfari ársins:

1 Kristján Andrésson, Svíþjóð, 98
2 Arnar Pétursson, ÍBV, 67
3 Þorsteinn Halldórsson, Breiðablik, 37
4 Finnur Freyr Stefánsson, KR, 22
5 Heimir Guðjónsson, HB, 12
6 Ólafur Jóhannesson, Valur, 10
7 Elísabet Gunnarsdóttir, Kristianstad, 8
8 Heimir Hallgrímsson, Ísland, 6
9 Þórir Hergeirsson, Noregur, 5
10 Guðmundur Guðmundsson, Barein og Ísland, 3
11-12 Patrekur Jóhanesson, Selfoss og Austurríki, 1
11-12 Stefán Arnarson, Fram, 1

Ísak Jasonarson
[email protected]