Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

GolfTV: Ólöf María íþróttamaður Dalvíkur 2014
Ólöf María Einarsdóttir.
Þriðjudagur 20. janúar 2015 kl. 08:27

GolfTV: Ólöf María íþróttamaður Dalvíkur 2014

Ólöf María Einarsdóttir var á dögunum kjörinn íþróttamaður Dalvíkur 2015. Ólöf, sem er 15 ára gömul, sigraði á Íslandsmótinu í holukeppni í sínum aldursflokki. Hún varð í öðru sæt á Íslandsmótinu í höggleik. Hún varð einnig stigameistari í 15-16 ára flokki kvenna á Íslandsbankamótaröðinni hjá Golfsambandi Íslands – þar sem hún sigraði á fjórum mótum af alls sex.

Hún varð einnig Norðurlandsmeistari og tók þátt í ýmsum verkefnum erlendis á vegum GSÍ. Þar á meðal Duke of York meistaramótinu sem er eitt sterkasta áhugamannamót í hennar aldursflokki á heimsvísu.

Hér fyrir neðan má sjá frétt sem birt var á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er rætt við Ólöfu Maríu. 
 

Örninn 2025
Örninn 2025