Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Þorkell Helgason úr Nesklúbbnum er sjálfboðaliði ársins hjá GSÍ
Þorkell Helgason með Hauki Erni Birgissyni forseta GSÍ
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson skrifar
þriðjudaginn 10. ágúst 2021 kl. 14:51

Þorkell Helgason úr Nesklúbbnum er sjálfboðaliði ársins hjá GSÍ

Á árlegum formannafundi GSÍ sem nú var haldinn á Akureyri í framhaldi af Íslandsmótinu í golfi var meðal annars veitt viðurkenning fyrir sjálfboðaliða ársins innan golfhreyfingarnar.  Sjálfboðaliðastarf er á undanhaldi í golfi sem og í öðrum íþróttagreinum og er það miður.  

Þorkell Helgason, meðlimur í Nesklúbbnum fékk í gær viðurkenningu sem sjálfboðaliði ársins hjá Golfsambandi Íslands. Þessi viðurkenning var veitt í fyrsta sinn árið 2014 og Þorkell sjöundi sjálfboðaliðinn sem fær þessa viðurkenningu.  Hann er svo sannarlega vel að þessari viðurkenningu kominn eins og allir aðrir sjálfboðaliðar og óskum við honum innilega til hamingju með viðurkenninguna.

Örninn 2025
Örninn 2025

Haukur Örn Birgisson, forseti GSÍ, afhenti viðurkenninguna á formannafundi GSÍ sem fram fór á Jaðarsvelli á Akureyri í dag og sagði við það tilefni eftirfarandi:

"Þorkell Helgason er maður með gullhjarta sem hefur unnið sjálfboðaliðastörf í þágu Nesklúbbsins undanfarna fjóra áratugi. Hann hefur setið í flestum nefndum klúbbsins, þó lengst af í vallarnefnd, samfellt í 14 ár. Frá árinu 1983 hefur Þorkell lyfti grettistaki hvað varðar endurnýjun vélarflota klúbbsins - ásamt því að leggja línurnar fyrir það ásigkomulag vallarins sem hefur haldist frá þeim tíma. Þorkell sat í stjórn Nesklúbbsins á árunum 1993-2005. Frá þeim tíma hefur Þorkell ávallt verið boðinn og búinn að hlaupa í öll störf fyrir klúbbinn. Hann fór fyrir fögrum hópi sjálfboðaliða sem nýverið endurgerði golfskála Nesklúbbsins ásamt því að byggja útigeymslur. Þorkell er hinn eini sanni "alt mulig mand" sem ómetanlegt er að hafa innan sinna raða. Því miður er aðeins til eitt eintak af þessum einstaka manni sem er ávallt tilbúinn að leggja hönd á plóginn fyrir Nesklúbbinn."