Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Reed hafði lítið að segja um ásakanirnar
Patrick Reed.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
föstudaginn 21. febrúar 2020 kl. 18:56

Reed hafði lítið að segja um ásakanirnar

Fáar sögur hafa vakið jafn mikla athygli undanfarna mánuði og meint svindl hjá Patrick Reed á Hero World Challenge mótinu í Bahamas. Reed fékk þá tvö högg í víti fyrir að bæta legu sína í glompu en á meðal þeirra sem hafa rætt um málið undanfarið eru Brooks Koepka, Peter Kostis og Cameron Smith.

Allir töluðu þeir frekar illa um málið og vildu meina að um svindl væri að ræða.

Örninn 2025
Örninn 2025

Um helgina fer Heimsmótið í Mexíkó fram og er þar Reed á meðal keppenda. Eftir fyrsta hringinn var Reed spurður út í ummæli Koepka og hafði hann lítið um málið að segja.

„Í raun ekki,“ sagði Reed. „Ég meina, ég sagði allt sem ég hef að segja á Bahama eyjum og í lok dags er það eina sem ég er að reyna gera að spila gott golf og vonandi vinna mót, vonandi næ ég Rory.“

Tengdar fréttir:

Myndband: Reed fékk tvö högg í víti fyrir þetta
Rory um Reed: „Þetta leit illa út"
Smith vorkennir Reed ekki neitt
Reed segist ekki vera svindlari
Myndband: Justin Thomas gerir grín að Patrick Reed
Myndband: Langt og erfitt ár framundan hjá Reed?
Lögfræðingur Reed varar fréttamenn við því að kalla hann svindlara